Dags: 19.8.
Brottför: frá BSÍ kl. 09:30.
Erfiðleikastig:
Almennt verð: 0 kr.
Nr. 1208D03
Í norðanverðum Skorradal er Stálpastaðaskógur, einn af þjóðskógum Íslendinga. Þar er trjásafn og fræðslustígar liggja um skóginn. Þema ferðarinnar verður nytjajurtir í skógum og verður hugað að því ætilega sem grær í skógum eða í skjóli þeirra, svo sem berjum, sveppum og jurtum. Auk þess verður að sjálfsögðu reynt að bera kennsl á þær tegundir trjáa og jurta sem vaxa í skóginum. Einnig er hægt að ganga upp fyrir skóginn til að skoða mismun á gróðri innan og utan skógar. Ef tími vinnst til verður komið við í íslenskum birkiskógi.