Raðgöngur eiga sér stóran aðdáendahóp. Það er skemmtileg tilfinning að eiga að baki langar leiðir og fara jafnvel landshluta á milli með öðrum hætti en almennt gerist. Nú förum við frá Akureyri til Reykjavíkur.
Leiðin liggur um ýmsar þjóðleiðir, til dæmis um Nýjabæjarfjall, Skagfirðingaveg, Síldarmannagötur og Svínaskarð. Heildarlengd göngunnar er um 320 km. Farangur er trússaður en gist verður í tjöldum.
Áfangi 1
7.–10.7. Akureyri – Blöndulón, 4 dagar, um 100 km.
Ekið er frá Akureyri að Villingadal í Eyjafjarðarsveit þar sem gangan hefst. Lagt á Nýjabæjarfjall og gengið yfir að Árbæjarkirkju í Austurdal í Skagafirði og tjaldað þar. Frá Árbæ er farið á kláfi yfir Austari-Jökulsá og haldið yfir í Vesturdal. Þaðan er stefnan tekin upp á Eyvindarstaðaheiði og yfir að Blöndulóni.
Áfangi 2
28.–31.7. Blöndulón – Kalmanstunga, 4 dagar, um 100 km.
Ferðin hefst við Blöndulón þar sem fyrsta áfanga lauk. Genginn verður hinn forni Skagfirðingavegur, yfir Stórasand og Arnarvatnsheiði og niður að Kalmanstungu.
Áfangi 3
Dagleiðir ágúst – október
11.8. Kalmanstunga – Húsafell – Reyðarfell – Auðsstaðir, um 20 km.
25.8. Auðsstaðir – Búrfell – Brautartunga í Lundarreykjadal, um 20 km.
22.9. Brautartunga – Hádegishnjúkur - Fitjar í Skorradal – Botnsvogur í Botnsdal, um 20 km.
6.10. Botnsdalur – Brynjudalsvogur – Fossárdalur –Vindáshlíð - Kjósarskarð, um 25 km.
20.10. Kjósarskarð – Reykjavík, um 30 km. Hjólaferð.